- Advertisement -

Ekkert eftirlit með ráðherrunum

Alþingi / „Við greiðum nú atkvæði um varnir gegn hagsmunaárekstrum æðstu stjórnenda ríkisins. Málið er framfaraskref og það er margt gott í þessu frumvarpi að finna en þar er ekkert sjálfstætt eftirlit með því að reglunum verði fylgt og ekki nóg með það, þar er nákvæmlega ekkert eftirlit með því að ráðherrar fylgi reglum um skráningu hagsmuna sinna að finna. Hvers vegna ekki?“

Þetta sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati við að atkvæðagreiðslu um frumvarp um varnir gegn hagsmunaárekstrum í Stjórnarráði Íslands.

Hvers vegna ekki, spurði Þórhildur Sunna og hún leitaðist við að svara: „Skýrustu svörin sem ég hef heyrt er að ekki hafi náðst samstaða í meiri hlutanum um sjálfstætt eftirlit, nú eða eftirlit yfir höfuð, gagnvart því hvernig ráðherrar sinna vörnum sínum gegn hagsmunaárekstrum. Meiri hlutinn náði þó samstöðu fyrir helgi þegar hann lýsti því yfir að það væri tilgangslaust að halda áfram að kanna hagsmunatengsl hæstvirts sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar, vegna tengsla hans við sjávarútvegsfyrirtækið Samherja. Um það náðist samstaða í meiri hlutanum.“

Hún endaði svona: „Aðhald og eftirlit sjálfstæðra aðila er mikilvæg forsenda fyrir trausti. Ég vona því að þessi lög verði styrkt áður en langt um líður.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: