- Advertisement -

Erum ekki að ná endum saman í ríkisfjármálunum

Alþingi:

Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar steig í ræðustól eftir að hafa hlustað á ræðu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar:

„Hvaða leið vill Sjálfstæðisflokkurinn fara? Hann hefur kynnt leiðir, m.a. að selja ríkiseignir, selja þá eina hlið landsmanna út í heim, selja Keflavíkurflugvöll eða Isavia, selja einokunarfyrirtæki eins og Rarik. Ég er ekki viss um að það sé endilega mjög gott fyrir íbúa landsbyggðarinnar að það verði selt.

Ég held að það sé jafnvel betra fyrir einokunarfyrirtæki, nema það sé búið að búa til sterkari umgjörð um það þannig að gjaldskrá sé ekki hækkuð út í eitt eða að haldið sé áfram að byggja upp innviði. Það þarf að vera traust umgjörð um það. Það á ekki síður við um Landsnet sem er á sölulista Sjálfstæðisflokksins. Eru þetta einu tillögurnar eða er eitthvað fleira sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur til í þessari umræðu?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég hef heyrt það hér í umræðunni að háttvirtur þingmaður er sammála markmiði ríkisstjórnarinnar um að láta enda ná saman í ríkisfjármálum. Þess vegna væri fróðlegt að heyra hvaða leið Sjálfstæðisflokkurinn vill fara. Menn fara ekki langt á því, tel ég, að selja ÁTVR. Það er alltaf nefnt og blásið upp. Ég get alveg verið sammála því að það megi endurskoða það fyrirkomulag. En við erum ekkert að fara langt með það í því að ná endum saman í ríkisfjármálunum.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: