- Advertisement -

Hörmu­leg á­hrif á stjórn­kerfið

Hvað verður um dýrlegar veislur í sendiráðum eða fyrirlestra í Róm um hvatakerfi við útgáfu reglugerða ef enginn kemst þangað?

Baldur Björnsson skrifaði þessu fínu grein og birti á Vísi. Miðjan vill ólm hafa þessa fínu grein vistaða hér.

„Ástæða er til að hafa miklar áhyggjur af þeim hörmulegu áhrifum sem ferðastoppið hefur – og mun hafa – á íslenska stjórnkerfið, ríkið jafnt og sveitarfélögin. Ferðastoppið þýðir einfaldlega að embættismenn komast ekki mánuðum saman á mikilvæga fundi og ráðstefnur í útlöndum.

Hvert mannsbarn áttar sig á því að þessi skortur á ferðalögum opinberra starfsmanna til útlanda færir þekkingu og vit í stjórnkerfinu aftur um ár og áratugi.

Ferðalögin eru lífæðin

Staðreyndin er sú að tíð ferðalög opinberra embættismanna og millistjórnenda til útlanda eru lífæð stjórnsýslunnar. Hvers virði er t.d. skrifstofustjóri í ráðuneyti sem ekki nær að endurtaka kvöldverð fyrri ára á góðum veitingastað í London með öðrum skrifstofustjórum í sambærilegum erlendum ráðuneytum? Tengslanetið hrynur. Hvers virði eru reglugerðir Evrópusambandsins ef lögfræðingar ríkis og sveitarfélaga geta ekki sótt kvöldverðarfundi um þær í Brussel? Hvernig eiga utanríkisráðherra og þingmenn að geta tjáð sig um mannréttindi og siðgæði ef þeir hafa ekki sótt Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í tvær vikur? Hvað gerist ef ekkert verður af ferðum á samráðsfundi um norræna samvinnu í Tampere og Trondheim. Eða ef hittingur sem var með þingmönnum í Nýja Sjálandi korter íCovid verður ekki endurtekinn kortér yfir Covid? Hvað verður um dýrlegar veislur í sendiráðum eða fyrirlestra í Róm um hvatakerfi við útgáfu reglugerða ef enginn kemst þangað?

Illa farið með borgarstjórann

Dagur B. Eggertsson.
Tíðar utanlandsferðir hans ásamt fríðu föruneyti hafa t.d. skapað dýrmæta þekkingu á lokun miðborgar fyrir bílaumferð.

Verst fer ferðastoppið þó með Dag B. Eggertsson borgarstjóra. Tíðar utanlandsferðir hans ásamt fríðu föruneyti hafa t.d. skapað dýrmæta þekkingu á lokun miðborgar fyrir bílaumferð. Að ekki sé talað um innsýn í sporvagnasamgöngur umfram Minør, en henni safnaði borgarstjórinn í yfirreið um Kaupmannahöfn, Strassborg og Vancouver. Ferð hans á loftslagsráðstefnuna í Suður-Kóreu var sérlega mikilvæg fyrir borgarbúa, en kannski ekki fyrir loftslagið. Ein best heppnaða utanlandsferð borgarfulltrúa og embættismanna var til San Francisco til að kynna sér bílastæðavandamál. Að vísu eru þau vandamál óleyst og verða það áfram þar til hægt verður að ferðast aftur um heiminn í leit að lausum bílastæðum. Ferðalög borgarstarfsmanna til að skoða enn einu sinni trjárækt í sólríkum miðborgum eru í útrýmingarhættu.

Áhrif Pírataþingmanns lögð í rúst

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Á þeim vettvangi hefur rödd Íslands heyrst lágt og snjallt, ótt og títt.
Skjáskot: Silfrið.

Af einstökum þingmönnum er ljóst að ferðastoppið fer afar illa með Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Án vafa er hún áhrifamesti þingmaður Íslendinga í útlöndum, með þátttöku sinni í laga- og mannréttindanefnd og jafnréttisnefnd Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins. Á þeim vettvangi hefur rödd Íslands heyrst lágt og snjallt, ótt og títt. Tjónið er tvöfalt, þingmaðurinn tapar tengslum við raunveruleikann í útlöndum og erlendir kollegar verða af vísdómsorðum Píratans.

Fjarfundir koma ekki í stað Vildarpunkta

Fjarfundir á netinu og tölvupóstar leysa ekki af hólmi þann ávinning sem embættismenn fá með því að fljúga reglulega til útlanda, fá Vildarpunkta hjá Icelandair, gista á góðum hótelum, fá dagpeninga, mæta á fundi, heilsa fólki með handabandi, fá mynd af sér með hópnum og ná svo enn betri tengslum yfir kokteil og góðum dinner með úrvals víni. Aðeins þau persónulegu tengsl sem þannig myndast skapa grundvöllinn fyrir því að geta seinna meir beðið ritarann að senda tölvupóst og biðja um afrit af skýrslum og fundargerðum sem óvart duttu ofan í ruslafötuna á hótelherberginu.

Má ekki festa sig í sessi

Stjórnkerfið mun taka langan tíma að jafna sig á ferðalagaskortinum. Fráhvarfseinkenni geta orðið alvarleg, sérstaklega hjá millistjórnendum sem fara 6 sinnum eða oftar til útlanda í erindum stjórnsýslunnar og treysta á dagpeningatekjur. Framtíðin í þessum efnum er ekki björt. Mikil hætta er á að mestöll samskipti stjórnsýslunnar við útlendinga færist varanlega yfir á fjarfundi á netinu og tölvupóst. Það má ekki gerast!“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: