Alþingi:
„Þarna ákvað hæstvirtur ráðherra að það væri ekki ástæða til að kynna frumvarpið vegna þess að hæstvirtur ráðherra er svo hræddur við að leiguverð hækki fram að gildistöku laganna. Með öðrum orðum: Hæstvirtur ráðherra er búinn að viðurkenna að þetta frumvarp sem hér liggur fyrir muni hækka leiguverð. Það liggur alveg ljóst fyrir, sem er nú eitt af því sem helst er varað við í þessum efnum,“ sagði Bryndís Haraldsdóttir.
Hér að neðan er öll ræða Bryndísar:
„Ég gat því miður ekki verið hér þegar hæstvirtur ráðherra mælti fyrir málinu og hefði án efa farið í andsvör eða látið í mér heyra strax þá. En virðulegur forseti, ég get ekki orða bundist hvernig þessari ríkisstjórn dettur í hug aftur og aftur að koma hér með mál sem eru svona illa unnin. Ríkisstjórnin sjálf hefur sett sér starfsreglur sem snúa að því að mál eigi almennt að fara inn í samráðsgátt. Af hverju ætli samráðsgátt stjórnvalda hafi verið fundin upp? Til að auka og vanda lagasetningu hér á Alþingi Íslendinga. Það að hvert málið á fætur öðru rati inn í þingsal án þess að samráðs hafi verið gætt er óásættanlegt. Ég hef þegar lagt fram fyrirspurn til hæstv. forsætisráðherra um þetta mál. Það er því miður þannig að það eru allt of mörg mál sem ríkisstjórnin ákveður fyrir sitt leyti að þurfi ekki að fara í samráðsgátt, nú eða að það birtist í samráðskaflanum einhver skrýtin útlistun á því hvað raunverulega hafi komið fram í samráðsgáttinni.
Virðulegur forseti. Á blaðsíðu 11 í greinargerð frumvarpsins stendur í kafla 5, um samráð, með leyfi forseta:
„Frumvarpið snertir fyrst og fremst leigjendur og leigusala. Áform um að banna mánaðarlega vísitölutengingu leiguverðs voru kynnt almenningi í öðrum húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar auk þess sem áform um lagasetninguna voru kynnt í innra samráði ráðuneyta. Við vinnslu frumvarpsins var haft samráð við fjármála- og efnahagsráðuneytið og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Í ljósi þeirra breytinga sem um ræðir var ákveðið að hvorki áform um lagasetninguna né drög að frumvarpi yrðu kynnt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem slíkt gæti hvatt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna.“
Þarna ákvað hæstv. ráðherra að það væri ekki ástæða til að kynna frumvarpið vegna þess að hæstv. ráðherra er svo hræddur við að leiguverð hækki fram að gildistöku laganna. Með öðrum orðum: Hæstv. ráðherra er búinn að viðurkenna að þetta frumvarp sem hér liggur fyrir muni hækka leiguverð. Það liggur alveg ljóst fyrir, sem er nú eitt af því sem helst er varað við í þessum efnum.
Mér finnst þessar fáu línur sem hér eru settar fram utan um þetta samráð sýna metnaðarleysi og ákveðna tilburði sem við höfum stundum lýst sem ég á þetta, ég má þetta. Það skiptir engu máli hvað öðrum finnst. Við ætlum bara að gera þetta svona. Við ætlum ekki að vanda okkur, við ætlum ekki að hlusta á hvað öðrum finnst. Við ætlum ekki að reyna að gera málið eins vel úr garði og hægt er.
Ég hef tekið þátt í ýmsum breytingum á húsnæðislögunum og ég hef ekki alltaf verið sátt við þær breytingar sem við höfum verið að gera. Ég hef meira að segja hræðst það að við höfum verið að gera of örar breytingar. Þetta kemur enn ofan í það. Ég hef verulegar efasemdir um það sem hér er verið að leggja til og ég óttast að markmið frumvarpsins muni ekki ná fram að ganga heldur muni það hafa þveröfug áhrif.
Virðulegur forseti. Hér fyrr í dag í fundarstjórn var bent á ummæli til að mynda seðlabankastjóra, en það eru fleiri sem hafa stigið fram á ritvöllinn og tjáð sig um þetta mál. En, virðulegur forseti, mér þykir bara réttast að hæstvirtur ráðherra taki þetta mál til baka, setji það, eins og reglur ríkisstjórnarinnar kveða á um, í samráðsgátt og vandi sig betur áður en komið er með mál hér í þinglega meðferð.“