Samningsmarkmið Íslands liggja fyrir
Þorgerður Katrín utanríkisráðherra er í viðtali við Vísi. Lok viðtalsins er svona:
„Að sögn utanríkisráðherra liggi samningsmarkmiðin fyrir, svart á hvítu, í áliti meirihluta utanríkismálanefndar.
„Í sjávarútvegsmálum er markmiðið skýrt og engum vafa undirorpið: Ísland haldi fullu forræði yfir sjávarauðlindinni og rétti okkar til að stýra veiðum á grundvelli sjálfbærni, ráðgjafar sérfræðinga og veiðireynslu, og að afrakstur auðlindarinnar haldist hér áfram. Í landbúnaði er lögð áhersla á að hér verði áfram hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis og byggða, og að banni við innflutningi lifandi dýra verði viðhaldið til að verja sérstöðu okkar sem eyju langt út í hafi. Í orkumálum er markmiðið að forræði þjóðarinnar yfir vatns og orkuauðlindum haldist óskorað, og að ákvörðun um sæstreng verði áfram íslensk ákvörðun eins og lög kveða á um í dag,“ segir ráðherra.
Þá segir Þorgerður stefnt að því að Ísland geti tekið upp evru eins fljótt og aðstæður leyfa.“