- Advertisement -

Segir RÚV kynda undir gyðingaandúð

„Aðgerðir af þessu tagi, og aðgerðaleysi, kynda undir gyðingaandúð og eru óþolandi í lýðræðislegu tilliti.“

Karl Gauti Hjaltason.

Alþingi: Karl Gauti Hjaltason Miðflokki í störfum þingsins:

„Engum dylst að gyðingaandúð hefur vaxið mjög á Vesturlöndum síðustu misseri í kjölfar átaka fyrir botni Miðjarðarhafs sem hófust með grimmilegri og fyrirvaralausri árás hryðjuverkamanna inni í Ísrael 7. október 2023. Gyðingar sæta ofsóknum um allan heim og fyrir tveimur dögum voru á annan tug saklausra drepin af handahófi á baðströnd í Ástralíu. Þessi andúð er líka nær okkur en það. Skráð hatursbrot gegn gyðingum í Danmörku hafa á tveimur árum farið úr 9 í 207 á síðasta ári. Nú er svo komið að gyðingar fara huldu höfði um allan heim af réttmætum ótta við áreiti, ofbeldi og jafnvel dauða. Jafnvel hér á Íslandi verðum við vör við þetta. Hér, 400.000 manna þjóð, herlaus úti í Atlantshafi. Við höfum á undanförnum misserum verið í hópi þeirra þjóða sem harðast ganga fram í að taka afstöðu í þessum málum. Nú síðast hefur ríkisrekna sjónvarpsstöðin okkar, sem á síðustu misserum hefur flutt daglega fréttir af svæðinu, aðallega frá annarri hlið mála, sagt okkur Íslendinga frá vinsælli söngvakeppni, ein Norðurlandaþjóða, vegna þátttöku Ísraels í keppninni. Aðgerðir af þessu tagi, og aðgerðaleysi, kynda undir gyðingaandúð og eru óþolandi í lýðræðislegu tilliti.

Frú forseti. Það er á ábyrgð stjórnvalda að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn slíkri andúð.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: