- Advertisement -

Venjulegu fólki ætlað borga skuldirnar

Umræður á Alþingi:

Guðlaugur Þór Þórðarson:

„Ég vil spyrja hæstvirtan ráðherra sömu spurningar og ég spurði hæstvirtan forsætisráðherra vegna þess að ég fékk ekki nein svör. Það er í fyrsta lagi af því að bæði Samfylkingin og Viðreisn lofuðu því að hækka ekki skatta á venjulegt fólk, og ég tilgreindi það hér í fyrirspurnatíma sem hæstv. ráðherra var viðstaddur, hvort sem það er tekjuskatturinn, barnabætur, vaxtabætur, bílar, skattarnir og ýmislegt fleira, og mín spurning er einfaldlega þessi:

Er þetta ekki venjulegt fólk sem greiðir þessa skatta? Þetta var mjög skýrt og eftir því tekið þegar þessu var lofað fyrir kosningar. Ef þetta er ekki venjulegt fólk, hvaða fólk er þetta þá?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Daði Már Kristófersson:

„Það er alveg ljóst að þær tekjuaðgerðir sem ráðist er í í þessum bandormi, og svo sem bandormi síðasta árs líka, hafa áhrif á ýmsa og í öllum tilfellum held ég að þar sé undir venjulegt fólk sem aðrir. Það þarf auðvitað að horfast í augu við það að langvarandi hallarekstur ríkisins verður að stöðva og ég hef átt orðastað við háttvirtan þingmann um það áður.

Þegar Alþingi tekur ákvörðun um að taka hluta af útgjöldum sem það vill verja til samfélagsins að láni þá er auðvitað verið að taka ákvörðun um það að þjóðin muni greiða þann reikning einhvern tímann. Þess vegna er það þannig að þær ákvarðanir sem hafa safnast upp núna á alllöngum tíma, sem eru orðnar allnokkrar að umfangi eða um 860 milljarðar, munu falla á þessa sömu einstaklinga, hjá því verður ekki komist. Það eru engir aðrir tekjustofnar hjá hinu opinbera.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: