Njörður P. Njarðvík, prófessor emeritus, skrifar:
Að undanförnu hafa leitað á mig spurningar og efasemdir um þjóðsönginn.
Tengir þjóðin sig í raun og veru eitthvað við þennan þjóðsöng sem er svo erfiður til söngs? Er hann kannski sunginn af sljóum vana án þess að hugsa um sjálfan textann? Er réttlætanlegt að þjóðsöngur skuli vera eldheitt trúarljóð?
Í tilefni af þúsund ára afmæli landnáms orti Matthías Jochumsson kvæði er hann nefndi Lofsöng beint upp úr Gamla testamentinu, nánar tiltekið 90. sálmi Davíðs. Var það flutt við lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar í fyrsta sinn í Dómkirkjunni 2. ágúst 1874. Matthíasi þótti lítið til þess koma og líkti við hljómandi málm og hvellandi bjöllu. Þar er hvergi minnst á þjóðina eða náttúru Íslands og hvergi vottar fyrir ættjarðarást. Það fjallar einungis um eitt: að lofa Guð og tilbiðja hann. Er ekki löngu kominn tími til að við hættum að tilbiðja hinn grimma Guð Gamla testamentisins, sem sagði m.a. að samkynhneigðir skyldu líflátnir (3M 20:13) og nefndi konur í sömu andrá og búsmala (5M 3:19)? Páll frá Tarsus (síðar nefndur postuli) tók undir þetta í bréfum sínum, að samkynhneigðir ættu að fá makleg málagjöld og að konur ættu að þegja á samkomum og vera mönnum sínum undirgefnar í einu og öllu. Minnir kannski á talibana?
Í tilefni af lýðveldishátíðinni 1944 var efnt til ljóðasamkeppni. Verðlaunum var skipt á milli tveggja skálda, Huldu og Jóhannesar úr Kötlum.
Hulda orti ljóðabálk er nefndist Söngvar helgaðir þjóðarhátíðardegi Íslands 1944. Emil Thoroddsen samdi lag við 3. hlutann sem við þekkjum sem Hver á sér fegra föðurland.
Jóhannes orti ljóð sem hann nefndi Land míns föður. Þórarinn Guðmundsson samdi við það kröftugt lag og taktfast, sem allir geta sungið. Hefð er fyrir því að syngja fyrsta og fjórða erindi:
Land míns föður, landið mitt,
laugað bláum straumi,
eilíft vakir auglit þitt
ofar tímans glaumi.
Þetta auglit elskum vér,
– ævi vor á jörðu hér
brot af þínu bergi er,
blik af þínum draumi.
—
Hvort sem krýnist þessi þjóð
þyrnum eða rósum,
hennar sögur, hennar ljóð,
hennar líf vér kjósum.
Ein á hörpu íss og báls
aldaslag síns guðamáls
æ hún leiki ung og frjáls
undir norðurljósum.
Ég leyfi mér að leggja til að Land míns föður verði nýr þjóðsöngur.
Grein Njarðar birtist í Mogganum í dag.