- Advertisement -

Síþreytandi þessi Vilhjálmur Birgisson

Efnahagur:

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Það er farið að reyna verulega á þolmörkin að hlusta á sífelldan barlóm Vilhjálms Birgissonar um verðbólgu og vaxtaokur. Í hvert sinn sem nýjar verðbólgutölur birtast stígur hann fram og minnir landsmenn á að verðtryggð lán hafi hækkað. Eins og það séu einhverjar nýjar fréttir.

Íslendingar þurfa ekki áminningu um áhrif verðbólgunnar. Heimilin finna fyrir henni í buddunni, fyrirtækin í rekstrinum og lántakendur á greiðsluseðlunum. Vandinn er öllum kunnur.

…söngurinn er
orðinn eins og
hvimleitt suð…

Það sem vekur hins vegar athygli er að sami maður og talar hæst um afleiðingar verðbólgunnar virðist hafa minni áhuga á að ræða þær breytingar sem gætu stuðlað að lægri verðbólgu, lægri vöxtum og stöðugra efnahagsumhverfi til lengri tíma.

Þar kemur Evrópumálið sterkt inn. Þegar þjóðin fékk tækifæri til að taka afstöðu sagði Vilhjálmur Birgisson nei. Alveg eins og Sólveig Jónsdóttir, sem hefur einnig opinberað fákunnáttu sína á sviði góðrar efnahagsstjórnar. Það er auðvitað þeirra réttur. En þá verður líka eðlilegt að spyrja hvort samræmi sé á milli þess að gagnrýna stöðugt afleiðingar kerfisins og hafna um leið þeim lausnum sem laga vandann.

Það verður sífellt erfiðara að hlusta á lómasönginn um verðbólgu þegar sá sem hæst hrópar vill ekki ræða alvöru lausnir. Enn ein yfirlýsingin um verðtryggðu lánin gagnast engum, en söngurinn er orðinn eins og hvimleitt suð sem allir vilja vera án.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: