- Advertisement -

Verðum að tryggja hag okkar félagsfólks

Vinnumarkaður:

Halla Gunnarsdóttir, formaðiur VR, skrifar:

„Nú eru átta dagar sem við í stéttarfélögunum höfum til stefnu til að segja upp kjarasamningum. Sumarið var án aðgerða, september hefur liðið án niðurstöðu.

Við í VR, LÍV og Fagfélögunum höfum verið skýr á því að við teljum ekki hægt að bjóða félagsfólki upp á hálft annað ár til viðbótar af launalækkunum, einnig þekkt sem launahækkanir undir verðbólgu. Í grein á Vísi í dag förum við yfir stöðuna sem er uppi. Boltinn er hjá SA og spurningin sem við höfum beint til þeirra er hvort þau hafi raunverulega trú á að hér sé hægt að ná niður verðbólgu og stýrivöxtum. Ef ekki, þá verðum við að tryggja hag okkar félagsfólks í gegnum kjarasamninga.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: