Samfélag:
Stefan Ásgrímsson skrifaði:
Augljóst er hversu nýleg frammistaða Höllu Gunnarsdóttur formanns VR hefur komið Sólveigu Önnu formanni Eflingar og Vilhjálmi Birgissyni formanni Starfsgreinasambandsins úr jafnvægi. Bæði tala þau um ,,fjölmiðlasirkus” og ,,leiksýningu” sem engu hafi skilað félagsfólki Höllu umfram það sem þau sjálf og ,,Breiðfylking” þeirra höfðu þegar náð fram.
Við RÚV sagði Sólveig Anna m.a:
Trúlega er það ástæða
geðvonsku þeirra Sólveigar
Önnu og Vilhjálms nú.
…….. ,,fólk ætlar hér, eftir að hafa dregið okkur öll í gegnum þennan sirkus, að reyna að halda því fram að þau hafi ekki verið upplýst um hvað var í gangi, það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks.“
Á Vísi er talað við Vilhjálm:
,,Formaður Starfsgreinasambandsins (Vilhjálmur Birgisson – innsk.) segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu.”
Megin niðurstaða nýafstaðinna átaka á vinnumarkaðinum er sú að kjarasamningar fá að standa áfram haldist verðbólga innan tiltekinna marka.
Hvorug fylkingin náði sjálfvirkum kaupmáttarbótum. VR hinsvegar fékk, umfram Breiðfylkinguna, skilyrtan útgöngurétt úr kjarasamningum fari verðbólga yfir tiltekin mörk. Rofni verðbólgumörkin situr Breiðfylkingin föst, VR ekki.
Trúlega er það ástæða geðvonsku þeirra Sólveigar Önnu og Vilhjálms nú.