Stjórnmál:
Þorsteinn Pálsson skrifaði:

Þorsteinn Pálsson er með nýja grein á eyjan.is. Hér er hluti greinarinnar:
Fjallháum raunvöxtum
er fyrst og fremst beitt
til að halda uppi
fölsku gengi krónunnar.
„Rætur verðbólgu liggja víða. Sumar liggja á erlendum mörkuðum. Aðrar liggja í fjármálastefnu ríkis og sveitarfélaga. Og svo eru þær sem nærast á ónógum aga í atvinnulífinu. Þar er vandinn mestur í dag.
Nærri helmingur þjóðarframleiðslunnar er í fyrirtækjum, sem vextir Seðlabankans ná ekki til. Annar hluti hefur allar sínar tekjur í verðtryggðum krónum og er þannig sjálfvirk verðbólgudæla. Þriðji hlutinn veltir vöxtum Seðlabankans hindrunarlítið út í verðlagið.
Af því að vextir Seðlabankans duga ekki til að hemja þenslu í hagkerfinu hækkar atvinnulífið svo laun langt umfram kjarasamninga og veltir þeim ákvörðunum síðan út í verðlagið án viðnáms.
Það þarf aga í hernum sagði góði dátinn Svejk. Hér vantar bæði aga og ábyrgð.
Ofan á allt þetta bætast svo umfangsmestu fjármagnshöft sem þekkjast í markaðslöndum. Og ýmislegt bendir til þess að skattkerfið auðveldi atvinnulífinu umtalsverða peningaprentun.
Seðlabankinn hefur aldrei fengist til að segja þjóðinni satt um þann veruleika að í þessu rammskakka kerfi geta vextir bankans ekki farið mikið niður fyrir 6% þótt 2,5% verðbólgumarkmiðið náist.
Fjallháum raunvöxtum er fyrst og fremst beitt til að halda uppi fölsku gengi krónunnar.
Þessi veruleiki á ekki heima í einhverju leyndarráði eins og sagt er frá í gömlum konungasögum, og svokallað þjóðhagsráð minnir helst á, heldur í opinni umræðu við fólkið í landinu.
Það samtal þarf nú að fara fram.“
Greinina endar Þorsteinn svona:
„Alvöru aðgerðir kalla á frekari kerfisbreytingar, tíma og samtal við þjóðina. Vel færi á því að ríkisstjórnin segði hreinskilnislega, og svo hátt að bergmálaði frá fjalli til fjöru, að tími gamalla bellibragða sé liðinn.
Það væri í góðu samræmi við uppruna hennar, stefnu hennar og árangur í ríkisfjármálunum. Þjóðin heyrir ekki það sem hvíslað er í lokuðu herbergi þjóðhagsráðs eða leyndarráðs.“
Fyrirsögnin er val Miðjunnar.