Efnahagur:
Egill Almar Ágústsson hagfræðingur skrifaði:
Síðustu vikur hefur tónninn í umræðunni um stöðu efnahagsins breyst hratt. Hagstofan birti í lok ágúst tölur sem sýna að landsframleiðsla dróst saman um 1,1% milli ára á öðrum ársfjórðungi.
Í nýrri könnun Gallup fyrir Seðlabankann og Samtök atvinnulífsins meta stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins aðstæður slæmar fjórða ársfjórðunginn í röð. Vísitala efnahagslífsins mælist 19 stig á kvarða sem nær upp í 200. Væntingar til næstu sex mánaða hafa ekki verið lægri síðan 2018 og 34% fyrirtækjanna gera ráð fyrir að fækka starfsfólki en aðeins 9% að fjölga því.
Seðlabankastjóri varar við því að miklar launahækkanir ofan í kólnandi hagkerfi og háa vexti geti valdið harðri lendingu. Hann segir: „Við sjáum í tölunum að það hafa ekki ný störf verið að skapast, ekki nettó.“ Samtök atvinnulífsins segja að verðmætasköpunin sem átti að standa undir kostnaði kjarasamninganna hafi látið á sér standa. Það virðist vera nokkuð almenn samstaða um að hagkerfinu gangi ekki vel.
Í sumar var tónninn annar. Þá sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, forsvarsmaður Áfram Íslands: „Við erum í meistaradeild. Evrópusambandið í núverandi formi er í besta falli að keppa um miðja aðra deild.“ Spurningin er hvort hagkerfið hafi breyst svona mikið á nokkrum vikum eða hvort við séum fyrst núna að viðurkenna það sem hefur verið staðan lengi.
Hagvöxtur á mann frá hruni
Samanlagður hagvöxtur á mann, fram á enda annars ársfjórðungs (30. júní) 2026, hefur verið:
Frá 2007 (hámark fyrir hrun):
- 6,8% á Íslandi, eða 0,3% á ári að meðaltali.
- 12,9% á evrusvæðinu, eða 0,6% á ári.
- 18,3% í Evrópusambandinu, eða 0,9% á ári.
- 28,1% í Bandaríkjunum, eða 1,3% á ári.
Frá 2013 (eins konar jafnvægisár eftir hrun):
- 12,5% á Íslandi, eða 0,9% á ári að meðaltali.
- 16,4% á evrusvæðinu, eða 1,2% á ári.
- 20,2% í Evrópusambandinu, eða 1,4% á ári.
- 26,7% í Bandaríkjunum, eða 1,8% á ári.
Frá 2017 (tæp tíu ár):
- 2,7% á Íslandi, eða 0,3% á ári að meðaltali.
- 8,4% á evrusvæðinu, eða 0,9% á ári.
- 10,8% í Evrópusambandinu, eða 1,1% á ári.
- 18,6% í Bandaríkjunum, eða 1,9% á ári.


Og okkur vantar það sem gæti komið okkur á næsta stig: hagvaxtarvél framtíðarinnar.
Ísland hefur vaxið minna en evrusvæðið, Evrópusambandið og Bandaríkin á öllum þremur tímabilunum, og munurinn er töluverður. Frá 2007 hefur landsframleiðsla á mann vaxið nærri tvöfalt meira á evrusvæðinu en á Íslandi, nærri þrefalt meira í Evrópusambandinu og fjórfalt meira í Bandaríkjunum. Hefðum við vaxið eins og Evrópusambandið frá 2007 hefði landsframleiðsla á mann á Íslandi verið tæplega 10% hærri árið 2025. Þetta veltur ekki á því hvaða upphafsár er valið. Hvert einasta upphafsár frá 2004 gefur sömu niðurstöðu: landsframleiðsla á mann hefur vaxið meira í Evrópusambandinu og Bandaríkjunum en á Íslandi, fram á enda annars ársfjórðungs 2026.
Síðustu ár hefur bilið stækkað hraðar en áður. Frá 2007 til 2017 hélt Ísland í við evrusvæðið. Síðan hefur landsframleiðsla á mann vaxið þrefalt meira þar en á Íslandi, fjórfalt meira í Evrópusambandinu og nærri sjöfalt meira í Bandaríkjunum. Gagnvart Evrópusambandinu hefur bilið stækkað þrefalt hraðar frá 2017 en áratuginn á undan. Á sama tíma hefur landsframleiðsla á mann líka vaxið hraðar í Danmörku, Svíþjóð og Noregi en á Íslandi, og frá 2018 hefur hún nánast staðið í stað.
Draghi-skýrslan, sem Mario Draghi vann fyrir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins árið 2024, snýst um áhyggjur af því að Evrópa sé að dragast aftur úr Bandaríkjunum. Þar segir að raunverulegar ráðstöfunartekjur á mann hafi vaxið nærri tvöfalt meira í Bandaríkjunum en í Evrópusambandinu frá aldamótum. Við sjáum muninn hér að ofan. En við skulum vera hreinskilin við okkur sjálf: við erum að vaxa hægar en bæði Evrópusambandið og Bandaríkin og yfir langan tíma.
Frá 2007 hefur Evrópusambandið dregist um 8% aftur úr Bandaríkjunum í vexti á landsframleiðslu á mann, en á sama tíma höfum við dregist um 10% aftur úr Evrópusambandinu. Af 33 Evrópuríkjum sem Eurostat birtir tölur fyrir óx landsframleiðsla á mann hægar en á Íslandi í aðeins fimm ríkjum frá 2007 til 2025: Grikklandi, Lúxemborg, Finnlandi, Ítalíu og Austurríki. Ef Evrópusambandið er í annarri deild erum við í fallbaráttu. Ég sé ekki hvers vegna við ættum að eyða tíma í að hafa áhyggjur af Evrópusambandinu, eins og var gert óspart í sumar, þegar við erum sjálf neðar á töflunni.
Stærra hagkerfi, ekki ríkari þjóð
Hagkerfið hefur samt stækkað. Landsframleiðslan var 34% meiri árið 2025 en árið 2007, en íbúum fjölgaði um 26%. Langstærstur hluti vaxtarins fór í að halda í við fólksfjölgunina. Lífskjör batna ekki við það að hagkerfið stækki, heldur þegar hver og einn framleiðir meira.
Stundum er bent á að við vinnum færri stundir en áður. Frá 2007 hefur unnum stundum á hvern starfandi fækkað um 7,5% á Íslandi en 4,5% í Evrópusambandinu, og nær allur munurinn varð til eftir 2017. Munurinn er lítill í samhengi við átján ára hagsögu. Hjá þeim sem eru í raun ekki í tímavinnu heldur bera ábyrgð á verkefnum minnka afköstin varla þótt vinnutíminn styttist lítillega. Margir vinna meira en stimpilklukkan sýnir og hugsa um verkefnin utan vinnutíma. Að mæla vinnu í stimpluðum klukkustundum missir marks í þróuðu hagkerfi. Ég efast um að styttingin skýri mikið í 10 eða 20 ára samhengi.
Það má skoða ýmsa aðra mælikvarða á gengi hagkerfisins, svo sem framleiðni. En á svo löngu tímabili er það hagvöxtur á mann sem skiptir mestu máli. Það er sá mælikvarði sem þjóðir nota til að bera sig saman. Annað er að tala í kringum stóru myndina.
Það vantar hagvaxtarvél
Ég velti því fyrir mér af hverju þetta er ekki hluti af stærri umræðu um hvort hagkerfið sé gallað í grunninn, hvort það vanti einfaldlega eitthvað sem knýr áfram hagvöxt á mann. Stærsti vaxtarbroddurinn síðustu fimmtán ár hefur verið ferðaþjónustan. Hlutur hennar í hagkerfinu hefur meira en tvöfaldast. Ferðaþjónustan er ekki hálaunagrein en heildarlaun fólks í fullri vinnu í gisti- og veitingarekstri voru 19% undir meðaltali árið 2025, lægst þeirra atvinnugreina sem Hagstofan birtir laun fyrir.
Kannski er það einmitt það sem gerðist. Þjóð sem var þegar rík veðjaði á grein sem skilar minna en meðaltalið á hverja vinnustund og borgar lægri laun. Greinin stækkaði hagkerfið en dró meðaltalið niður. Sá vöxtur átti sér þó einkum stað fram til 2018.
Frá 2010 til 2018 varð rúmur þriðjungur af fjölgun starfa í ferðaþjónustu, en síðan hefur störfum þar ekki fjölgað. Frá 2018 hefur rúmur helmingur fjölgunarinnar orðið í opinberri stjórnsýslu, menntun og heilbrigðis- og félagsþjónustu og um fimmtungur í byggingariðnaði. Vandinn er því ekki að ekkert annað hafi vaxið, heldur að ekkert af því hafi reynst nógu umfangsmikið og verðmætt til að knýja áfram hagvöxt á mann.
Rík lönd verða ekki ríkari með því að fjölga störfum sem skila minna en þau sem fyrir eru. Þau verða ríkari þegar til verða sérhæfð og vel launuð þekkingarstörf. Það eru slík störf, í tækni, fjármálum, sérfræðiþjónustu og fleiri geirum, sem skilja á milli þeirra svæða sem halda áfram að auðgast og hinna sem staðna. Ferðaþjónustan býr ekki til slík störf og aðrar greinar hafa ekki gert það í nægum mæli.
Frá 2010 hafa aðeins 6,5% nýrra starfa á Íslandi orðið til í upplýsingatækni, fjármálum og sérfræðiþjónustu, samanborið við 27% í Evrópusambandinu og 17 til 28% á hinum Norðurlöndunum. Af þeim 35 Evrópulöndum sem Eurostat birtir tölur fyrir er Ísland það eina þar sem hlutur þessara greina af störfum hefur minnkað frá 2010. Það vantar hagvaxtarvél sem býr til nógu mikið verðmæti til að draga meðaltalið upp. Aðeins þannig mun Ísland fara á næsta lífskjarastig.
Þessi atriði eru ekki tæmandi listi yfir ástæður þess að Ísland hefur verið að vaxa hægar en umheimurinn, og ég veit ekki hvort þetta séu stóru ástæðurnar eða ekki, en það sem skiptir mestu máli í dag er að gera sér grein fyrir því að þetta er staðan og svo að bregðast við.
Ríkari í evrum en ekki í krónum
Ísland er ríkt land og um það þarf ekki að deila. En tilfinningin síðustu ár um að við séum að verða ríkari en aðrir kemur út af genginu, ekki aukinni framleiðslu á mann. Laun hafa hækkað hratt síðustu ár, en að mestu til að halda í við verðlag. Frá 2021 til 2025 hækkaði launavísitalan um 37% en vísitala neysluverðs um 30%, svo í krónum finnum við lítinn mun. Krónan hefur hins vegar haldist sterk og jafnvel styrkst.
Frá 2021 til 2025 hækkuðu laun á Íslandi um 42% mælt í evrum (krónan styrkist ofan á hækkun launa), en verðlag á evrusvæðinu um 19%. Kaupmáttur launa í evrum jókst því um nærri fimmtung, á meðan kaupmátturinn heima jókst um 5%. Þá virðist allt ódýrt þegar við ferðumst og útlendingarnir fátækir. Í júlí fór 26,5% af kortaveltu Íslendinga fram erlendis, á ferðalögum og í erlendri netverslun, hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir þetta gerir minni hagvöxtur hjá okkur í langan tíma það að verkum að við erum að verða hlutfallslega fátækari. Það er einfaldlega krónan sem hefur ekki aðlagast.
Stöðnun á Íslandi byrjaði ekki í sumar
Umræðan síðustu vikur hefur snúist um verðbólgu, vexti, forsendubrest kjarasamninga og skatta- og gjaldahækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi. Allt eru þetta raunverulegt. En þetta er umræða um samtímann, síðustu mánuði og þá næstu. Stöðnun á Íslandi er eitthvað sem hefur verið í gangi mun lengur. Ég held að það hafi vantað sjálfsgagnrýni, að Íslendingar hafi verið of sannfærðir um eigið ágæti og orðið værukærir.
Stóra myndin er þessi: Í tæpa tvo áratugi hefur landsframleiðsla á mann vaxið hægar á Íslandi en á evrusvæðinu, í Evrópusambandinu og í Bandaríkjunum, og síðustu ár hefur bilið breikkað hraðar. Samt eyddum við sumrinu í að ræða hvort Evrópusambandið væri að dragast aftur úr. Við virðumst einfaldlega ekki hafa tekið eftir því að við værum sjálf að dragast aftur úr.
Og okkur vantar það sem gæti komið okkur á næsta stig: hagvaxtarvél framtíðarinnar. Ferðaþjónustan gaf okkur fleiri störf en ekki verðmætari, og engin önnur grein hefur verið nógu stór til að keyra áfram hagvöxt. Þetta er kjarninn í því sem rík lönd þurfa að gera, að komast að því hvernig eigi að búa til næsta stig af verðmætasköpun í þróuðu hagkerfi. Annars verður landið áfram fast á sama lífskjarastigi og önnur lönd taka fram úr okkur.
Stöðnun á Íslandi hefur staðið í áratug, jafnvel tvo, og það er kominn tími til að hætta að vera værukær, og bregðast við.
Höfundur er hagfræðingur.
Greinin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.