- Advertisement -

Slá á helsta djásn Framsóknar

Viðhorf Þeir eiga það sameiginlegt Sveinn Arason ríkisendurskoðandi og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra að tala ofan í Vigdísi Hauksdóttur. Með engum árangri. Vigdís bar ríkisendurskoðenda og…

GBS: Ekkert óvenjulegt að gerast

Sprengisandur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sat fyrir svörum í Sprengisandi á Bylgjunni síðasta dag janúarmánaðar, fyrir tíu dögum. Hef engar áhyggjur af vörnum Íslands Þar var rætt…

Húbert Nói í Galleríi Gróttu

Mannlíf Reykjavík 1985-1990 er yfirskrift sýningar Húberts Nóa Jóhannessonar sem verður opnuð í Gallerí Gróttu fimmtudaginn 11. febrúar kl. 17. Á sýningunni eru nokkur verka Húberts Nóa sem unnin eru…

Lítið tjón vegna aðgerða gegn Rússum

Stjórnmál Þegar Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra svaraði Steingrími J. Sigfússyni um til hvaða mótvægisaðgerða verði gripið vegna skaða af viðskiptaþvingunum gegn Rússum, benti ráðherra á…

Reikningurinn sendur til Vopnafjarðar

Alþingi Steingrímur J. Sigfússon spyr sjávarútvegsráðherra um hverjar verða aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að mæta skaða sem hlýst af refisaðgerðum gegn Rússum. „Mitt mat er að það geti…

Er Ísland á móti banni við kjarnavopum?

Alþingi Steinunni Þóru Árnadóttur, þingkona Vinstri grænna, hefur spurt Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra nokkurra spurninga vegna atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og…

Creditinfo má safna gögnum um fólk

Neytendur Kvartað var til Persónuverndar vegna skráningar Creditinfo og meðferðar á skráningum fyrirtækis. Kærandinn segir í kvörtun sinni: „Málið er að mér var flett upp í kerfinu hjá…

Með ógeð eða andstyggð á pólitík

Stjórnmál Hinir klassísku íslensku stjórnmálamenn koma nú fram hver af öðrum og myndast við að sækja til baka það fylgi, þá kjósendur, sem nú er í stuðningsliði Pírata. Hver þeirra hefur síðan aðferð,…

Bónus oftast með lægsta verðið

Neytendur Bónus í Ögurhvarfi var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í átta verslunum á höfuðborgarsvæðinu fimmtudaginn 4. febrúar. Bónus var lægst í 81 tilviki, Krónan í…

Þegar Brynjar fer á barinn

Viðhorf Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist aldrei heyra nokkurn kjósenda deila áhuga á stjórnarskrármálinu eða kosningum um aðildarviðræður að Evrópusambandinu, með Birgittu…

Kjarasamningar valda borginni vanda

Sprengisandur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að mestan fjárhagsvanda Reykjavíkur megi rekja til nýgerðra kjarasamninga. Til að mæta þeim að fullu hefði þurft að skera meira niður, en…

Grensásvegur: Þörf á endurnýjun

Sprengisandur Dagur B. Eggertsson og Halldór Halldórsson mættust í Spengisandi í morgun. Grensásvegur kom til umræðu. Dagur sagði brýnt að ráðast í endurbætur, hvort sem gatan verði þrengt eða ekki.…

Innanhúss sérfræðingar

Samfélag Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, var í ágætu viðtali við Stefán Einar Stefánsson, blaðamann á Morgunblaðinu, um Borgunarmálin. Sumt af því sem bankastjórinn segir þar er…

Umræðan verður í Sprengisandi

Sprengisandur Í Sprengisandi í fyrramálið mætast Dagur B. Eggertsson og Halldór Halldórsson og takast á um málefni Reykjavíkurborgar. Rætt verður um rekstur borgarinnar, niðurskurð og samdrátt,…

Alkul í Samfylkingunni

Stjórnmál Skrifaði þessa fréttaskýringu fyrir Fréttatímann 21. janúar. Í Samfylkingunni er tekist á um það sem mestu skiptir í starfi stjórnmálaflokks; forystu og hvert beri að stefna. Meiri geta…

Bara ein leið, að ganga í ESB

Alþingi Guðmundur Steingrímsson, Bjartri framtíð, talaði um landbúnað og verðandi búvörusamning á Alþingi. Tollar og útflutningur komu til umræðu. „Við búum við þann veruleika að í Evrópulöndunum,…

Óbreyttir stýrivextir?

Efnahagsmál Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans haldi stýrivöxtum óbreyttum á næsta vaxtaákvörðunarfundi. Ákvörðun nefndarinnar verður tilkynnt…

25 milljörðum minni hagnaður

Sjávarútvegur „Hreinn hagnaður (e.EBT) sjávarútvegsins var 36 ma.kr. árið 2014 sem er lækkun um 25 ma.kr frá árinu 2013 samkvæmt nýju riti Hagstofunnar, Hag veiða og vinnslu. Hagnaður árið 2013…

Skapaðu þitt eigið listaverk á Safnanótt

Mannlíf Það verður mikið um að vera í Listasafni Reykjavíkur á Safnanótt. Við opnum glæsilega Kjarvalssýningu á Kjarvalsstöðum og þar mun starfsfólk safnsins leiða gesti um sýninguna sem inniber…

Sérsveitin vopnaðist 393 á fimm árum

Samfélag „Sérsveit ríkislögreglustjóra hefur frá 1. janúar 2011 til 18. desember 2015 vopnast 393 sinnum vegna verkefna og atvikatilkynninga sem bárust lögreglu,“ sagði Ólöf Nordal innanríkisráðherra…

Dvergarnir sjö og Samfylkingin

Stjórnmál Haukur Arnþórsson skrifar á Pírataspjallið og skýtur föstum skotum að Össuri Skarphéðinssyni. Haukur skrifar: „Það er ekki gaman að sjá Össur Skarphéðinsson nudda sér utan í Pírata og…

Mjög gagnrýnin á frumvörp Eyglóar

Stjórnmál Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, skrifar langa grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann er, meðal annars, mjög gagnrýnin á…

Fá konur minni pening en menn?

Viðhorf Þannig hagar til í mínu lífi, að ég á fjórar afastelpur, sú yngsta er á fyrsta ári og þær elstu eru fimm ára. Einsog almennt er með afa þykja mér þær allar dásamlega fallegar, skemmtilegar og…

GBS: „Mér finnst þetta frábær hugmynd“

Sprengisandur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra var gestur í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hann var meðal annars spurður um þriggja milljóna styrk til fyrirtækis Árna Gunnarssonar, fyrrum…

Fjórir gestir

Sprengisandur Fjórir gestir verða í Sprengisand á Bylgjunni í dag. Þingmennirnir Katrín Júlíusdóttir Samfylkingunni og Haraldur Benediktsson Sjálfstæðisflokki ásamt fyrrverandi þingmanninum Jóni…

„Ríkið, það er Sigmundur Davíð.“

Samfélag Enn heldur áfram ritdeila borgarstjórans, Dags B. Eggertssonar, og forsætisráðherrans, Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar. Víst er að margt hefur gaman að deilu valdsmannanna, Dags og…

Gunnar Bragi og Sprengisandur

Sprengisandur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra verður í ítarlegu fréttaviðtali í Sprengisandi á Bylgjunni í fyrramálið. Gunnar Bragi er og hefur verið í sviðsljósi pólitískrar umræðu. Nú…

Landsbankinn lætur boð út ganga

Samfélag „Við höfum látið þau boð út ganga að ef einhver hefur áhuga á hlut okkar í Eyri, þá erum við tilbúnir að taka á móti áhugasömum kaupendum. Sömuleiðis erum við að vonast til þess að það…

Hvar eru einbreiðu brýrnar?

Alþingi Vigdís Hauksdóttir, hefur sett fram fyrirspurn til Ólafar Noedal innanríkisráðherra, um hversu margar einbreiðar brýr eru á þjóðvegi 1 og hvernig skiptist fjöldi þeirra eftir kjördæmum?…

FKA: Heiðra Birnu Einarsdóttur

Atvinnulíf Viðurkenningur Félags kvenna í atvinnulífinu fékk Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka. „Birna útskrifaðist sem stúdent frá Verzlunarskóla Íslands, viðskiptafræðingur frá HÍ og…

Þingnefnd hafnar Bjarna Benediktssyni

Stjórnmál Ólafur Ísleifsson upplýsir á Facebooksíðu sinni, að efnahags- og viðskiptanefnd þingsins, undir forystu Frosta Sigurjónssonar hafi breytt frumvarpi Bjarna Benediktssonar, fjármála-og…

Reykjavík: Hver borgar moskuna?

Stjórnmál Fyrirhuguð moskubygging í Reykjavík og fjármögnun hennar var rædd á fundi borgarráðs í kvöld. Sjálfstæðismenn bókuðu: „Í mars sl. bárust fregnir af því að Sádi-Arabar hygðust leggja…

Samfylking Jóhönnu tók við eigin búi

Stjórnmál Vigdís Hauksdóttir svarar Jóhönnu Sigurðardóttur, vegna skrifa hennar, og skrifar eftirfarandi á Facebook. „Halló Jóhanna - Samfylkingin var í ríkisstjórn í 6 ár - frá 2007 - 2013…

Bjölluat á Alþingi

Stjórnmál „Markmið þessa frumvarps er að leggja bann við verðtryggingu neytendalána, ekki síst lána til kaupa á húsnæði,“ þannig hljómar upphaf greinagerðar frumvarpsins, sem Sigríður Ingibjörg…

Jóhanna reið Vigdísi

Stjórnmál Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, er fjarri sátt við málflutning Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar. „Ómerkilegt hjá formanni fjárlaganefndar að segja að…

Þjóð í dauðafæri

Alþingi Willum Þór Þórsson, þingmaður Framsóknarflokks, gerði umræðuna og andrúmsloftið í þjóðfélaginu að umræðuefni á Alþingi. „Í samhengi við það að draga fram þær miklu áskoranir sem við stöndum…

SDG: Gerði ekki grín af Kára

Samfélag Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, skrifar á Facebook, af tilefni bréfaskipta hans og Kára Stefánssonar. „Kári virtist telja mig hafa verið að gera grín að sér. Ég skal…

Einungis forsætisráðherra getur svarað

Alþingi Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðarm sagði á Alþingi í gær: „Í áramótaávarpi sínu sagði forsætisráðherra að það sem helst gæti orðið okkur til trafala væri kæruleysi og…

Yfir 50 þúsund sammála Kára

Samfélag Yfir 50 þúsund manns hafa tekið undir með Kára Stefánssyni á síðunni endurreisn.is. Þar segir Kári meðal annars: „Heilbrigðiskerfi er einn af hornsteinum nútímasamfélags og sýnir vilja…

Eldri borgara skortir síst efnisleg gæði

Alþingi „Það sem kemur verulega á óvart í skýrslunni er staða eldri borgara, en þeir eru sá hópur sem skortir síst efnisleg gæði,“ sagði Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsóknarflokki á Alþingi í dag.…

Starfsmannaleigur og undirboð

Alþingi „Forustumenn í verkalýðshreyfingunni, m.a. formaður Framsýnar, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna og forustumenn Alþýðusambandsins, hafa að undanförnu ítrekað bent á mörg alvarleg…

Airbnb á Íslandi með 3.900 gistirými

Neytendur „Umsvif húsnæðisleigusíðunnar Airbnb halda áfram aukast hratt á Íslandi og fyrirtækið hefur á sínum snærum umtalsvert fleiri herbergi en þrjár stærstu hótelkeðjur landsins samanlagt.“ Þetta…

Svavar: Vinstri heldur sínu

Stjórnmál Svavar Gestsson, fyrrum ráðherra og formaður Alþýðubandalagsins, skrifar á Facebook um síðustu skoðanakönnun MMR. Svavar rekur fylgi Pírata til allra annarra en VG og Samfylkingar. „Miðað…

SDG: Niðurstaða sem er augljóst klúður

Alþingi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði, á Alþingi í dag, þegar hann svaraði Árna Páli Árnasyni um sölu Landsbankans á hlut sínum í Borgun. Ráðherra sagðist sammála Árna Páli…

Ríkisstjórnin: Vandinn er Sjálfstæðisflokksins

Húsnæðismál „Séreignastefnan í húsnæðismálum er grunnstoð sjálfstæðisstefnunnar. Breyta þarf húsnæðisstefnunni þannig að fólki verði gert kleift að eignast  í stað þess að hvetja til skuldsetningar.…

Tveggja ára gamlar fréttir

Stjórnmál Borgrráð fjallaði, á síðasta fundi sínum, um átak til að stórefla upplýsingamiðlun til innflytjenda á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Þörf er á slíku átaki enda hefur komið fram hér á fundinum…

Leiðréttingunni lokið

Stjórnmál Nýlega var gengið frá lokauppgjöri milli ríkissjóðs og fjármálafyrirtækja vegna höfuðstólsleiðréttingar fasteignaveðlána. Greiðslan var lokaáfangi í framkvæmd aðgerðaráætlunar…

JG: Kaupendur Borgunnar borgi til baka

Stjórnmál „Mér finnst þetta mál hneyksli og þeir sem bera á því ábyrgð hljóta að þurfa að axla hana, jafnvel þó allt hafi verið gert í góðri trú,“ skrifar Jón Gunnarsson, þingmaður…

ÍNN: Stjórnarslit

Samfélag Stjórnarslit hafa orðið í heimastjórninni á ÍNN. Allsráðandi þar, Ingvi Hrafn Jónsson, hefur sagt skilið við fyrrverandi meðráðherra sína; Guðlaug Þórð Þórðarson, Hall Hallsson og Jón…

Fjórar konur í Sprengisandi

Sprengisandur Fjórar konur verða gestir í Sprengisandi á Bylgjunni í fyrramálið. Til að ræða fréttir vikunnar, eða það sem hæst hefur borið koma; Heiða Kristín Helgadóttir, Sigríður Andersen og…

Aðgerðir Rio Tinto varhugaverðar

Vinnumarkaður Kjaradeilan í álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík var til umræðu á miðstjórnarfundi Alþýðusambandsins sem fór fram miðvikudaginn 20. janúar síðastliðinn. Gylfi Arnbjörnsson forseti…

Fylgishrun eftir „velheppnaðan“ landsfund

Stjórnmál „Ég held að tilkoma mín inn í þetta starf breikki ásýnd forystunnar. Ég er í háskóla og á vinnumarkaði á sumrin svo kannski er ég meira að upplifa það sem aðrir kjósendur eru að upplifa.“…

Hér eru ríkisbankasinnar

Alþingi „Hér eru ríkisbankasinnar sem vilja að ríkið eigi þessi fyrirtæki eins og mörg önnur og síðan eru hinir sem vilja í grundvallaratriðum að ríkið losi sig undan eignarhaldinu en vilja tryggja að…

Salek: Ný tækifæri opnast

Vinnumarkaður Guðmundur Þ. Ragnarsson, formaður VM, segir nýgerðan samning á vinnumarkaði gefa meiri vonir en áður til að takast megi að stöðva höfrungahlaupið og að við færumst nær því sem hefur…

Eygló í Sprengisandi

Sprengisandur Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðisráðherra verður gestur í Sprengisandi á Bylgjnni á sunnudaginn. Það verður af nógu að taka, hún er ráðherra húsnæðismála, þar sem mikið er undir,…

Miðjan efst

Vinsælustu vefritin Miðjan.is Kvennablaðið Liverpool Bloggið Klapptré Herðubreið eirikurjonsson.is Blogggáttin.

MBL: Verðtryggingin skaðar engan

Samfélag Leiðari Morgublaðsins í dag er forvitnilegur. Hann ber fyrirsögnina; „Dellukenningar?“ Þar er meðal annars talað um verðtryggingu og kenningar í kringum hana. „En eins og menn vita þá…

Minni ánægja með Ólaf Ragnar

Samfélag Færri segjast vera ánægðir með störf Ólafs Ragnars Grímssonar nú en í langan tíma. Að sama skapi segjast fleiri vera óángæðir með forsetann nú en lengi áður. Ólafur Ragnar hefur eigi að…

35.000 tonn af ferskum fiski

Sjávarútvegur „Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki fluttu út tæplega 35.000 tonn af ferskum flökum og bitum á árinu 2014 fyrir 38,5 milljarða króna samkvæmt gögnum Hagstofu Íslands,“ segir á heimasíðu…

Skóladagvistun hækkar í verði

Samfélag Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrám fyrir skóladagvistun ásamt hressingu og hádegismat, fyrir yngstu nemendur grunnskólanna, hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins.…

Kanna ástæður örorku ungs fólks

Samfélag „Velferðarráðuneytið hefur gert samning við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands um gerð könnunar sem felst í því að greina aðstæður ungs fólks í hópi öryrkja, meta hvort koma megi í veg…

Sjálfstæðisflokkur: Aldrei minna fylgi

Stjórnmál MMR hefur birt nýja skoðanakönnun um fylgi flokkanna. Að venju mælast Píratar með langmesta fylgið, eða 34,9 prósent. Hins vegar hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki áður mælst með minna…

Birgitta atar þingmenn auri og lygum

Alþingi „Birgitta Jónsdóttir hefur ekki úr háum söðli að detta í þessari umræðu frekar en áður. Ummæli hennar í kvöldfréttum sjónvarpsins 11. janúar síðastliðinn þar sem fjallað var um viðskiptabannið…

Eygló fékk ekki stuðning Guðfinnu

Stjórnmál Meirihluti borgarstjórnar styður þá stefnu sem fram kemur í fyrirliggjandi húsnæðisfrumvörpum um upptöku húsnæðisbóta og uppbyggingu almennra íbúða sem byggðar verði upp með stofnframlögum…

Þjóðin bjargi stjórnarsamstarfinu

Viðhorf Ég horfði ekki á Eyjuna í gær. Handboltinn náði huga mínum. Hef ekki nennt að horfa á netinu. Í þættinum mun, samkvæmt fréttum, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagst vilja þjóðaratkvæðagreiðslu…

REÁ: Mótframlag lækkað í 20 prósent

Sprengisandur Fram­kvæmda­sjóður ferðamannastaða hefur ekki getað úthlutað öllum þeim peningum sem sjóðurinn hefur til ráðstöfunnar. Ástæða er trúlega sú að krafan um mótframlag þeirra sem hyggja á…

Afar óeðlileg framkoma ráðherrans

Sprengisandur Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri er allt annað en sáttur við Sigurð Inga Jóhannsson landbúnaðarráðherra vegna orða sem ráðherra lét falla í Sprengisandi fyrir réttri viku. Sveinn…

Ráðherra: Aðgangsstýring á ferðafólk

Sprengisandur Meðal þess sem kom fram í viðtali við Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra, í Sprengisandi í morgun, var hvort til greina komi að takmarka hversu margir ferðamenn geti komið á vinsæla og…

REÁ: Einhugur um aðgerðirnar gegn Rússum

Sprengisandur Ragnheiður Elín Árnadóttir sagði, í Sprengisandi í morgun, einhugur vera innan ríkisstjórnarinnar um áframhald viðskiptaþvingana gagnvert Rússum. Hún segir líka samstöðu vera um að…

Forsætisráðherrann, Mogginn og fréttirnar

Sprengisandur Meðan Bjarni spókar sig í Kína með nokkurra milljarða upp á vasann, sem áhöld eru uppi um, hvort hann hafi fengið heimild til að ráðstafa, kemur æ betur í ljós að fyrirmyndarríkið…

Erum við landníðingar eða er allt í sóma?

Sprengisandur Erum við landníðingar eða er allt í sóma, eða erum við einhversstaðar þar á milli? Sveinn Runólfsson landfgræðslustjóri svarar þessu að óbreyttu í Sprengisandi á eftir. Áður hefur…

Ragnheiður ráðherra ferðamála

Sprengisandur Ragnheiður Elín Árnadóttir, sem er ráðherra ferðamála, nýsköpunar, iðnaðar, orku og viðskipta, verður í fréttaviðtali í Sprengisandi í fyrramálið. Margt er að gerast í málaflokkunum sem…

Afbrigðileg riða á Austurlandi

Landbúnaður Matvælastofnun fann, við skimun, riðu í kind frá bænum Kelduskógum í Berufirði á Austfjörðum. Ekki þykir ástæða til niðurskurðar. „Á tilraunastofum hefur tekist að að flytja smitefni…

Falið atvinnuleysi og aukinn brottflutningur

Vinnumarkaður „Atvinnuleysi er enn á niðurleið þó hægt hafi á lækkun þess. Hlutfall starfandi hefur náð sömu hæðum og í síðustu uppsveiflu, sem er til marks um kraft efnahagslífsins. Á þriðja…

Hvenær fær borgin íbúðirnar?

Stjórnmál Reykjavíkurborg keypti, sem kunnugt er, 47 íbúðir af Íbúðalánasjóði. Framsóknarmenn, í borgarstjórn, vilja vita hversu margar íbúðanna eru þegar lausar til afnota. „Þá er óskað eftir…

Sitja þeir við sama ríkisstjórnarborðið?

Stjórnmál Utanríkisráðherrann, Gunnar Bragi Sveinsson og sjávarútvegsráðherrann, Sigurður Ingi Jóhannsson, hafa báðir sagt fulla einingu innan ríkisstjórnar Íslands um að við höldum ótrauð áfram…

SDG: Stjórnmálamenn úthluta milljörðum

Stjórnmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var í viðtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, þar sem rætt var um skipulagsmál í miðborginni. Forsætisráðherra hefur áhyggjur af…

Hægri menn fóru og fara með rangindi

Samfélag „Hægrimenn segja að við verðum að snúa af leið norræna módelsins ef við eigum að geta tekist á við áskoranir dagsins í dag. Þau höfðu rangt fyrir sér áður og hafa rangt fyrir sér nú. Þvert á…

Landsleikur í lestri

Mannlíf Landsleikurinn Allir lesa fer nú fram í annað sinn, að þessu sinni á þorra. Keppnin hefst á bóndadaginn, föstudaginn 22. janúar og lýkur á konudaginn, sunnudaginn 21. febrúar. Opnað var fyrir…

Prófessor: Ráðherra í afneitun

Sprengisandur „Um langa hríð hafa fagfólk, Landgræðsla ríkisins og fleiri bent á að nauðsynlegt sé að friða ákveðin svæði fyrir búfjárbeit, ekki síst auðnir, rofsvæði og hálendissvæði þar sem…

Úrvalsvísitalan upp um 43 prósent 2015

Viðskipti Árið 2015 var ár mikilla hækkana á hlutabréfamarkaði. Úrvalsvísitalan hækkaði um 43% á árinu. Hlutabréfamarkaðurinn hefur verið að byggjast upp undanfarin ár, eftir nær algjört hrun árið…

Beint flug til Búdapest

Neytendur Turisti.is segir frá að eitt stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu muni auka umsvif sín verulega hér á landi í ár með flugi til tveggja nýrra áfangastaða. „Framboð á flugi héðan til A-Evrópu…

Þegar Tobbi fór í tugthús

Viðhorf Fáir fangar, ef nokkrir, í seinnitímasögu okkar hafa verið meir til umfjöllunar fjölmiðla en Kaupþingsmennirnir á Kvíabryggju. Verið meiri fréttamatur. Einkum þess vegna er ekkert…

Kíkjum í klofið á henni

Viðhorf Lögreglan gekk sýnilega of langt við leit á sextán ára stúlku í fangaklefa á Akranesi. Það er gott hjá bæjarstjóranum, Regínu Ástvaldsdóttur, að óska skýringa á framferði lögreglunnar. Svo…

Þrettán hundruð hreindýr

Samfélag „Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1300 dýr á árinu, 848 kýr og 452 tarfa.…